Hvað gerist eftir umsóknarfrest?
Erasmus og Nordplus
Utan Evrópu
Erasmus og Nordplus
- Eftir umsóknarfrest eru allar umsóknir teknar til mats hjá Alþjóðaskrifstofu HÍ. Ef fleiri umsóknir berast í einhverja skóla en pláss er fyrir eru umsóknir metnar eftir einkunnum og fjölda lokinna eininga. Einnig er tekið tillit til kynningarbréfa o.fl. (statement of purpose).
- Að mati loknu eru stúdentar tilnefndir til gestaskóla, frekari gagna óskað ef þess þarf, og gestaskólar samþykkja eða hafna umsóknum. Kapp er lagt á að koma hverjum inn í þann skóla sem sótt var um sem fyrsta val. Ef það tekst ekki er í flestum tilvikum hægt að koma stúdent inn í skóla númer tvö eða einhvern annan skóla.
- Athugið að Alþjóðaskrifstofa tilnefnir ykkur til gestaskólanna en það eru gestaskólarnir sem ákveða og gefa lokasvar um hvort að þið fáið inngöngu. Tilnefningin er ekki staðfesting á inntöku.
- Eftir að nemendur eru tilnefndir af Alþjóðaskrifstofu til gestaskólana senda gestaskólarnir nemendum, annaðhvort beint eða í gegnum Alþjóðaskrifstofu, upplýsingar um umsóknarferlið í viðkomandi skóla. Þessi svör eru að berast á mjög misjöfnum tíma en flest berast í seint í apríl eða byrjun maí fyrir Eramus og Nordplus.
- Þegar upplýsingar um umsóknarferlið hafa borist þarf nemandi að sækja um í gestaskólann fyrir þann umsóknarfrest sem að gestaskólinn gefur upp. Það er mjög mikilvægt að lesa til hins ýtrasta þær upplýsingar sem berast frá gestaskólanum og fylgja þeim. Það er á ábyrgð Erasmus og Nordplus nema að senda út gögnin á réttum tíma og tryggja að þau skili sér fyrir umsóknarfrest. Í flestum tilvikum, það er þó breytilegt, þarf að fylla inn rafræna umsókn, prenta hana út og skrifa undir. Alþjóðafulltrúi þarf oft að skrifa undir líka. Að því loknu þarf að senda þessa umsókn út með pósti ásamt fylgigögnum. Athugið að þetta er ekki sama umsókn og þið skiluðuð inn til Alþjóðaskrifstofu, um er að ræða tvær mismunandi umsóknir.
- Lokasvör um inntöku berast frá gestaskólum á misjöfnum tímum. Í Erasmus og Nordplus eru þeir fyrstu að svara um og eftir miðjan júní fyrir haustönn og í nóvember fyrir vorönn. Skólar sem eru með annað skólaár en Íslands, s.s. Þýskaland, Spánn og Ítalía eru oft ekki að svara fyrr en undir lok júlí fyrir haustönn og í janúar/febrúar fyrir vorönn.
- Fyrir Erasmus og Nordplus nema er styrkumsóknin innifalin í umsókninni sem send er inn til Alþjóðaskrifstofu 1. mars. Svör við Nordplus styrkumsóknum berast í fyrsta lagi um og eftir 1. júlí. Erasmus styrkumsækjendur fá svar við sinni umsókn í fyrsta lagi seinni hluta júnímánaðar. Styrkirnir eru greiddir út á misjöfnum tímum en í flestum tilvikum eru þeir greiddir um það leyti sem skólaárið í gestaskólanum hefst.
Utan Evrópu
Í vinnslu
