Díana Dögg Víglundsdóttir var ráðin í starf ritstjóra ytri vefs Háskóla Íslands frá 1. júlí 2009. Díana Dögg lauk meistaranámi í blaða og fréttamennsku í júní 2009 og B.S. prófi í ferðamálafræði 2006 hvoru tveggja frá Háskóla Íslands.
Díana Dögg kemur úr starfi verkefnastjóra við nýjan ytri vef Háskólans sem var vígður 1. júlí 2008. Verkefni ritstjóra ytri vefs felast í daglegri umsýslu Drúpal vefumsjónarkerfisins, kennslu á kerfið, vinnustofur og leiðbeiningasmíð, ásamt ráðgjöf og aðstoð við vefstjóra fræðasviða HÍ. Díana Dögg sér jafnframt um smíði og innsetningu efnis á ytri vef Háskóla Íslands.
Aðsetur Díönu er í Aðalbyggingu á markaðs- og samskiptasviði sími, 525 4340 og netfang: ddv@hi.is.
