Brynjólfur Sigurðsson

Brynjólfur Sigurðsson (f. 1.5.1940), prófessor við viðskipta- og hagfræðideild

Brynjólfur Sigurðsson hóf störf við Háskóla Íslands sem stundakennari við viðskipta- og hagfræðideild háskólaárið 1969-1970. Hann varð lektor árið 1970, dósent 1975 og prófessor árið 1984. Árin 1978-1981 gegndi hann embætti hagsýslustjóra ríkisins í leyfi frá Háskóla Íslands. Brynjólfur var fulltrúi háskólaráðs í stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1971-1975 og framkvæmdastjóri bygginganefndar Hjónagarða 1971-1978. Þá var hann varaformaður Starfsnefndar háskólaráðs um nýbyggingar á háskólalóð frá 1978 og hefur verið formaður hennar frá 1991 til þessa dags. Brynjólfur hefur, ásamt Ragnari Ingimarssyni, verið einn helsti ráðgjafi rektors og háskólaráðs um byggingaráætlanir og nýbyggingar, viðhald og breytingar á húsnæði svo og kaup og sölu fasteigna. Meðal þeirra verkefna sem Brynjólfur hefur sinnt má nefna byggingu Hjónagarða, Odda, húsa verkfræði- og raunvísindadeilda, Tæknigarðs, lúkningu Læknagarðs og byggingu Náttúrufræðahúss, sem nú stendur yfir. Brynjólfur hefur ennfremur haft umsjón með umfangsmiklum og vandasömum viðgerðum á Árnagarði og Aðalbyggingu, kaup og endurbyggingu Haga, Neshaga 16 og Nýja Garðs, viðgerð og sölu Austurstrætis 16, sem hýsti Reykjavíkurapótek Háskólans, sölu á Loftskeytastöð fyrir tæknisafn Landsímans og Jarðfræðahúsi til þarfa Þjóðminjasafns.

Árlegt framkvæmdafé Háskólans nemur um 300 milljónum króna. Af því sést hve mikla fjárhagslega ábyrgð Brynjólfur hefur borið í þau rúmu 20 ár sem hann hefur gegnt þessum stjórnunarstörfum fyrir Háskólann. Þar hefur hann sýnt framsýni, staðfestu og þrautsegju ásamt færni í samningum sem hefur fært Háskólanum mikinn ávinning.

Brynjólfur Sigurðsson hlýtur hér með viðurkenningu Háskóla Íslands fyrir lofsvert framlag til byggingamála Háskólans.