Brynhildur Brynjólfsdóttir

Brynhildur Brynjólfsdóttir (f. 24. nóvember 1944), deildarstjóri Nemendaskrár Háskóla Íslands.

Brynhildur Brynjólfsdóttir hóf störf í Nemendaskrá Háskóla Íslands í september 1976. Haustið 1977 var starfsemi Nemendaskrárinnar tölvuvædd og var Brynhildur þátttakandi í tölvuvæddri skipulagningu hennar og uppsetningu frá upphafi. Brynhildur hefur verið deildarstjóri Nemendaskrárinnar síðan. Starfsemi Háskólans hefur breyst mikið á þessu tímabili sem liðið er, námsmöguleikum hefur fjölgað til mikilla muna og fjöldi stúdenta nær þrefaldast. Háskólaárið 1976-1977 voru 2.816 stúdentar við nám við Háskólann en eru nú um 8.000. Umfang starfsemi Nemendaskrárinnar hefur að sama skapi vaxið og þjónusta hennar við deildir, stúdenta, kennara og aðra sífellt verið að aukast. Upplýsingar úr nemendaskránni  eru notaðar til þess að skipuleggja kennslu, próf, bókakaup og fl. og því skiptir þar öllu máli að færslur séu nákvæmar, öruggar og aðgengilegar. Tölvukerfi Nemendaskrárinnar hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga nokkrum sinnum á þessu tímabili þar sem hratt flýgur stund í heimi tölvubúnaðarins - og nú er enn í deiglunni slík endurskipulagning. Brynhildur hefur ávallt verið áhugasöm um slíkar breytingar og endurbætur sem oft hafa kallað á uppstokkun vinnuaðferða. Hún hefur ætíð lagt kapp á að gera Nemendaskrána eins öfluga og góða deild og frekast er kostur svo hún megi veita háskólasamfélaginu sem besta þjónustu.

Brynhildur hefur alla tíð axlað ábyrgð sína af kostgæfni og sinnt erilsömu starfi af einskærri samviskusemi. Viðmót hennar er hlýtt og jákvætt og hún leitast ávallt við að greiða götu þeirra sem til hennar koma, stundum langt út yfir það sem starfskyldan býður. Hún er þekkt um allt háskólasamfélagið - og út fyrir það - sem Bimma í Nemendaskránni, sem allir stúdentar þekkja af góðu einu.

Því vill Háskóli Íslands veita Brynhildi viðurkenningu fyrir gæfuríkt starf í þágu skólans.