Breytingar á skráningu í námskeið

Endurskoðun skráningar

Endurskoðun skráningar í námskeið fer fram í Uglu fram til 10. september. Eftir það er ekki hægt að skrá sig í ný námskeið. Skráning í námskeið er jafnframt skráning í próf og veitir aðgang að öllum gögnum námskeiðs og því er mikilvægt að skráning sé alltaf rétt.

Ef einhver vandamál koma upp við endurskoðun skráningar er best að hafa samband við Þjónustuborð á Háskólatorgi eða Nemendaskrá.

Skráning úr námskeiði

Frestur til þess að skrá sig úr námskeiði rennur út þann 1. október. Skráning úr námskeiði er einnig skráning úr prófi. Úrskráning fer fram í Uglu.