
Bóksala stúdenta Háskólatogi selur námsbækur, ritföng, bækur, blöð og vörur merktar HÍ. Á vef Bóksölunnar geta nemendur fundið bókalista fyrir flest námskeið sem í boði eru við Háskóla Íslands og pantað bækur á vefnum.
Bóksala menntavísindasviðs er staðsett í skólahúsinu við Stakkahlíð og selur kennslubækur einkum á sviði kennslu, uppeldis og umönnunar. Þar er einnig hægt að fá stílabækur, möppur og fleiri smávörur vegna námsins. Í byrjun hverrar annar kemur bóksalan einn dag á Laugarvatn og þjónustar nemendur með það helsta.
