Bjarnheiður Kristín Guðmundsdóttir (f. 1. 5. 1948), vísindamaður við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Bjarnheiður Kristín Guðmundsdóttir var í fyrsta árgangi líffræðinga sem útskrifuðust með BS-próf frá Háskóla Íslands. Árið 1986 réðst Bjarnheiður til nýstofnaðrar fisksjúkdómadeildar Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og hefur gegnt þar rannsóknar- og stjórnunarstörfum síðan. Á fisksjúkdómadeildinni hafa frá upphafi verið stundaðar metnaðarfullar rannsóknir sem auka við grundvallarþekkingu á sýkingum og ónæmisvörnum í hryggdýrum auk þess sem þær hafa mikið hagnýtt gildi. Bjarnheiður hefur átt stóran þátt í að byggja upp þessar rannsóknir og þannig stuðlað að því að fisksjúkdómadeildin á Keldum hefur skipað sér á bekk með fremstu rannsóknastofnunum á sínu sviði.
Bjarnheiður var með þeim fyrstu sem innrituðust í formlegt doktorsnám við læknadeild Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi árið 1997 og fjallaði ritgerð hennar um sýkingamátt bakteríunnar sem veldur kýlaveikibróður, en sá sjúkdómur er mikill skaðvaldur í laxeldi.
Að loknu doktorsprófi hefur verið jöfn stígandi í rannsóknum Bjarnheiðar. Hafa þær orðið til þess að auka mjög skilning á sýkingarmætti ýmissa baktería, sem jafnframt er forsenda fyrir þróun nýrra sjúkdómavarna. Bjarnheiður hefur ýmist tekið þátt í eða stjórnað fjölþjóðlegum rannsóknarverkefnum á Norðurlöndum og á vegum Evrópusambandsins. Hún hefur verið iðin við að birta niðurstöður rannsókna sinna og flutt fjölda fyrirlestra á ráðstefnum. Bjarnheiður er viðurkennd á alþjóðavettvangi sem sérfræðingur með víðtæka þekkingu á sjúkdómum og sjúkdómsvörnum í fiskeldi og hefur flutt boðsfyrirlestra um þau efni víða um lönd. Síðast en ekki síst hefur hún tekið mjög virkan þátt í þjálfun meistara- og doktorsnema og leggur sérstaka alúð við handleiðslu nemenda sinna.
Af ofanskráðu er ljóst að Bjarnheiður Kristín Guðmundsdóttir hefur unnið ötullega að sköpun nýrrar þekkingar á sviði sem hefur mikið fræðilegt og hagnýtt gildi og hún hefur verið ötul við að koma þessari nýju þekkingu á framfæri jafnt á alþjóðlegum vettvangi sem og með þjálfun ungra vísindamanna.
Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Bjarnheiði Kristínu Guðmundsdóttur fyrir lofsvert framlag hennar til rannsókna við skólann.
