Ásgeir Haraldsson

Ásgeir Haraldsson (f. 20.5.1956), prófessor við læknadeild

Ásgeir Haraldsson lauk embættisprófi í læknisfræði við Háskóla Íslands 1982 og hlaut lækningaleyfi á Íslandi 1984. Sérfræðiviðurkenningu í barnalæknisfræði fékk hann 1990 og í ónæmisfræði barna 1991. Hann lauk doktorsprófi við háskólann í Nijmegen í Hollandi 1993 þar sem hann stundaði sérfræðinám sitt að mestu. Ásgeir starfaði sem sérfræðingur á deild háskólasjúkrahússins í Nijmegen fyrir ónæmisfræði og beinmergsflutninga og var yfirlæknir þar frá 1993 til 1994. Samtímis varð hann fastur kennari við Leiden-háskóla en hafði áður verið dósent í tvö ár. Hann var skipaður prófessor í barnalækningum við læknadeild Háskólans 1. janúar 1995 og er yfirlæknir barnaspítala Hringsins á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Hann hefur skrifað fjölda greina á fræðasviði sínu.

Ásgeir er forstöðumaður fræðasviðsins barnalækningar sem einkum er kennt á 5. ári læknanámsins. Auk þess hefur hann mörg undanfarin ár verið leiðbeinandi nemenda í rannsóknarverkefnum á 3. ári í læknisfræði og verið umsjónarmaður umræðufunda í námskeiði í ónæmisfræði á 3. ári. Ásgeir á einkar auðvelt með að vekja áhuga nemenda á barnalæknisfræðinni með eldmóði sínum og kennsluaðferðum. Hann er leiðtogi innan síns fræðasviðs og smitar samkennara sína ekki síður en nemendur af áhuga sínum á námsefninu. Hann nýtir sér tæknina við kennsluna og er einkar lagið að koma torskildu efni til skila. Ásgeir heldur fagmannlega utan um alla þá nemendur sem eru á hans ábyrgð og er ávallt reiðubúinn að aðstoða ef nemendur leita til hans. Það er mat nemenda að Ásgeir sé framúrskarandi og sérlega fjölhæfur kennari.

Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Ásgeiri Haraldssyni fyrir lofsvert framlag hans til kennslu við skólann.