Arnfríður Guðmundsdóttir

Arnfríður Guðmundsdóttir (f. 12. janúar 1961), dósent við guðfræðideild.

Arnfríður Guðmundsdóttir lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Hún stundaði doktorsnám í guðfræði við University of Iowa, University of Chicago og Lutherean School of Theology at Chicago. Hún lauk doktorsprófi í guðfræði (Ph.D.) frá síðastnefnda skólanum árið 1996 og fjallaði doktorsritgerð hennar um feminíska endurskoðun á hefðbundinni Kristsfræði í ljósi guðfræði krossins. Á árunum 1996-1999 var hún stundakennari við guðfræðideild Háskóla Íslands og kenndi bæði trúfræði og siðfræði. Hinn 1. janúar árið 2000 var hún ráðin lektor í sérstakt tímabundið starf í guðfræði með áherslu á kvennaguðfræði. Arnfríður var síðar fastráðin og hefur nú hlotið framgang í starf dósents. Er hún fyrsta konan sem ráðin hefur verið í fast kennarastarf við guðfræðideild. Arnfríður hefur kennt á mörgum fræðasviðum, auk trú- og siðfræði (samstæðilegrar guðfræði) hefur hún einnig kennt almenna kirkjusögu og gamlatestamentisfræði. Áður en Arnfríður flutti til Íslands hafði hún stundað kennslu í Bandaríkjunum samtals í um fjögur ár. Arnfríður þykir einstaklega góður kennari. Hún hefur hlotið mikið lof sem leiðbeinandi með lokaverkefnum. Þá er mat nemenda á kennslu hennar í kennslukönnunum einróma og sýnir miklar vinsældir hennar. Auk háskólakennslu hefur Arnfríður haldið námskeið um kvennaguðfræði og jafnréttismál í ýmsum söfnuðum þjóðkirkjunnar, á vegum ýmissa félagasamtaka og Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar sem rekinn er í samvinnu við guðfræðideild.

Háskóli Íslands vill með þessari viðurkenningu þakka Arnfríði Guðmundsdóttur fyrir lofsvert framlag hennar til kennslu við skólann.