Annadís G Rúdólfsdóttir

Annadís Gréta Rúdólfsdóttir var ráðin verkefnisstjóri Alþjóðlegs Jafnréttisskóla Háskóla Íslands frá 1. september 2009.

Annadís lauk BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 1989. Frá London School of Economics and Political Science lauk hún MA prófi 1990 og  doktorsprófi í Félagssálfræði 1997. Síðustu níu árin hefur Annadís gegnt stöðu dósents við University of the West of England. Annadís hefur reynslu af kennslu bæði á grunn- og framhaldsnámsstigi og tók þátt í að byggja upp kennslu í kynjafræðum við Háskóla Íslands. Lykilhugtök í rannsóknum hennar og fyrirlestrum hafa verið kyngervi, vald, valdefling; kynjaðar áherslur stofnanna samfélagsins (t.d. fjölmiðlar); kynjaðar myndir sjálfsins og og áhrif þeirra á stöðu kvenna.

Jafnréttisskólinn (Gender Equality Training Programme) er liður í þróunarsamvinnu Íslands. Markmið skólans er að þjálfa fólk til jafnréttisstarfa í þróunarlöndum og samfélögum sem verið er að byggja upp eftir átök. Jafnréttisskólinn er starfræktur á vegum Háskóla Íslands í samstarfi við utanríkisráðuneytið og í tengslum við Öndvegisklasa í jafnréttis- og margbreytileikarannsóknum (www.edda.hi.is).

Annadís hefur aðsetur í Gimli, sími: 525-427 netfang: annadis@hi.is

Háskóli Íslands býður Önnudís velkomna til starfa.