Anna Guðmundsdóttir

Anna Guðmundsdóttir var ráðin verkefnastjóri á Kennslumiðstöð frá 15. október 2010. Anna lauk BA prófi í almennri bókmenntafræði og íslensku frá Háskóla Íslands 1980, kennsluréttindum í uppeldis- og kennslufræðum 1985, M.Paed prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1995 og MLIS prófi í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands 2009.

Anna starfaði um tíma hjá Háskólanum á Bifröst sem kennari, á upplýsingamiðstöð og síðast sem vefstjóri Háskólans. Áður hafði Anna starfað við kennslu bæði í grunnskólum og framhaldsskólum.

Hlutverk Kennslumiðstöðvar er að veita kennurum Háskóla Íslands faglega aðstoð við þróun kennsluhátta. Auk almennrar ráðgjafar og þróunarstarfa er lögð áhersla á símenntunarnámskeið fyrir kennara á sviði upplýsingatækni og kennslufræði.

Anna hefur aðsetur í Kennslumiðstöð á 2. hæð íþróttahúss, sími: 525-4292 netfang: ang3@hi.is.

Háskóli Íslands býður Önnu velkomna til starfa.