Álfheiður Ástvaldsdóttir

Álfheiður Hrönn Ástvaldsdóttir var ráðin í hálft starf lektors í tannfyllingar- og tannsjúkdómafræðum við tannlæknadeild Heilbrigðisvísindasviðs frá 1. janúar 2011.

Álfheiður lauk Cand Odont frá Háskóla Íslands 1997,  Master of Medical Science í Odontology frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi 2003 og Doctor of Philosophy, PhD frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi 2010

Álfheiður hefur starfað sem kennari í tannfyllingar- og tannsjúkdómafræðum bæði sem stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands og seinna sem aðjúnkt, við Karolinska Institutet í Stokkhólmi, Svíþjóð.

Álfheiður hefur aðsetur í Læknagarði og er netfang hennar aha@hi.is og sími 525 4951.

Háskóli Íslands býður Álfheiði velkomna til starfa.