Afhverju ættuð þið sem nemendur við Háskóla Íslands að fara í skiptinám? Hvað græðið þið á því að fara í skiptinám og hvernig mun það nýtast ykkur núna og framtíðinni? Hérna eru nokkrir punktar sem koma frá nemendum sem hafa farið í skiptinám
- Það gefur ykkur einstaka lífsreynslu og tækifæri til að búa í nýju landi og kynnast nýrri menningu
- Styrkir þig sem persónu og veitir sjálfstæði
- Þið lærið, beint eða óbeint, um nýja menningarheima og verðið fyrir vikið umburðarlyndari og opnari fyrir heiminum og því sem hann hefur upp á að bjóða
- Gefur ykkur tækifæri til að nema á öðru tungumáli og mun án efa styrkja tungumálaþekkingu ykkar, hvort sem um er að ræða nám á ensku eða nýju framandi tungumáli
- Gefur ykkur tækifæri til að víkka út ykkar nám og taka námskeið sem eru ekki í boði við Háskóla Íslands
- Þið lærið inn á nýjar og öðruvísi kennsluaðferðir sem og aðrar aðferðir til leysa verkefni og vinna úr vandamálum
- Það lítur alltaf vel út að ferilskrá að hafa farið í skiptinám og getur veitt ykkur samkeppnisforskot, hvort sem um er að ræða atvinnu eða frekara nám.
- Gefur ykkur tækifæri til að kynnast nýju fólki frá öllum heimshornum og eignast nýjan alþjóðlegan vinahóp til lífstíðar
- Þið fáið tækifæri til þess að víkka sjóndeildarhring ykkar og styrkja ykkur sem einstaklinga, eitthvað sem enginn ætti að láta framhjá sér fara
Fleiri dæmi má lesa á síðunni um reynslusögur.
