Hvað þarf að gera áður en sótt er um?
- Lesið vel bæklinginn um skiptinám
- Mætið á kynningarfundi á vegum Alþjóðaskrifstofu
Þarf ég að skila gögnum um tungumálakunnáttu?
- Fyrir langflesta samstarfsskóla utan Evrópu þarf að hafa niðurstöður úr TOEFL enskuprófi. Niðurstöðurnar þurfa að liggja fyrir um miðjan janúar ár hvert, þar af leiðandi er síðasta tækifæri til að taka prófið fyrri hluta desember. Innan Evrópu er almennt ekki krafist TOEFL prófs en það gæti þurft að sýna fram á tungumálaþekkingu með öðrum hætti. Slíkar upplýsingar ættu að koma fram á heimasíðu viðkomandi skóla.
Hvað þarf ég að vera komin/-n langt í námi?
- Nemendur í grunnnámi verða að hafa lokið að lágmarki 60 ECTS í sínu fagi við Háskóla Íslands til að vera gjaldgengir í skiptinám. Meistaranemar geta farið á fyrstu önn í skiptinám samþykki deildin það. Að auki eru einstaka deildir með sérkröfur um hversu miklu nemendur skuli hafa lokið af sínu námi áður en þeir geta farið í skiptinám. Þetta er ekki tæmandi listi svo hafið samband við ykkar deild til að athuga með sérkröfur.
- Laganemar þurfa að hafa lokið grunnámi
- Verkfræðinemar þurfa að hafa lokið skyldunámskeiðum á fyrsta ári
- Læknanemar geta almennt ekki farið fyrr en á þriðja ári en hér er ekki að ræða um fasta reglu.
Hvernig vel ég gestaskóla?
- Skoða þarf skólana með tilliti til í hvaða greinum samningurinn við skólann er í. Það þarf að fara inn á heimasíður skólanna, skoða hvaða námsframboð þeir bjóða upp á og athuga hvort að það er nóg af námskeiðum í boði á ykkar áhugasviði.
- Lesið reynslusögur þeirra sem hafa áður farið út
Hvenær sæki ég um?
- Athugið að það er mismunandi umsóknarferli og umsóknarfrestir eftir því hvert þið eruð að sækja um skiptinám. Nánari upplýsingar um umsóknarferlið má finna á umsóknasíðunni.
