Aðrir styrkir fyrir akademíska starfsmenn

Aðrir styrkir fyrir akademíska starfsmenn

Auk rannsóknatengdra sjóða geta akademískir starfsmenn sótt um styrki úr sjóðum sem tengjast kennslu og öðrum verkefnum.

Kennslumálasjóður

Hlutverk Kennslumálasjóðs Háskóla Íslands er að stuðla að nýmælum í kennsluháttum og endurbótum á kennslu við Háskólann.

Sáttmálasjóður

Sáttmálasjóður veitir ferðastyrki til fastra kennara í fullu starfi, auk vísindamanna, fræðimanna og sérfræðinga.