Bandaríkin - Kanada - Mið- og Suður Ameríka
Eftirfarandi skólar hafa gert tvíhliða samning við Háskóla Íslands sem gerir ráð fyrir stúdentaskiptum. Umsóknarfrestur í skiptinám til Ameríku fyrir skólaárið 2010 - 2011 er í kringum 15. janúar ár hvert. Skólagjöld eru felld niður nema annað sé tekið fram.
Við umsókn í flesta eftirfarandi skóla þarf að taka TOEFL-próf.

Bandaríkin (United States of America)
- American University, Washington D.C. Opinn í náms- og starfsþjálfun. Afsláttur af skólagjöldum. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- Cooper Union School of Engineering, New York. Verkfræði. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- Florida International University, Miami. Hagfræði, raunvísindi og félagsfræði. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- North Park University, Chicago. Opinn. Ekki er krafist TOEFL tungumálaprófs.
- Ohio Northern University, Ada. Opinn í framhaldsnámi í lögfræði. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- Ohio State University, Columbus. Opinn í Líf- og umhverfisvísindadeild og jarðvísindadeild í framhaldsnámi. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- The George Washington University, Washington DC. Opinn í flestum fögum í grunnnámi. Tekur ekki við tilnefningum frá okkur skólaárið 2012-2013.
- University of California, Berkeley. Opinn fyrir skiptinám í framhaldsnámi. TOEFL tungumálaprófs er ekki krafist. Nemendur mega fara sem skiptinemar án þess að borga skólagjöld ef þeir eru tilbúnir að mæta í kúrsa án mats frá kennurum (án þess að fá einkunnir) eða stunda aðeins rannsóknir. Þeir sem vilja fá einkunnir þurfa að borga skólagjöld. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans.
- University of California, Santa Barbara. Opinn. Skólagjöld eru ekki niðurfelld. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University of Iowa, Iowa City. Opinn fyrir skiptinám í grunnnámi. Námsstyrkur í boði. Umsóknarfrestur 1. desember. TOEFL tungumálaprófs er krafist. Athugið að annað umsóknarferli er í þennan skóla. Nánari upplýsingar.
- University of Miami, Miami. Opinn fyrir skiptinám í grunnnámi. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University of Minnesota, Minneapolis. Opinn fyrir skiptinám í framhaldsnámi. Námsstyrkur í boði. Umsóknarfrestur 20. nóvember. TOEFL tungumálaprófs er krafist. Athugið að annað umsóknarferli er í þennan skóla. Nánari upplýsingar.
- University of Washington, Seattle. Opinn. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University of North Dakota, Grand Forks. Opinn.TOEFL tungumálaprófs er ekki krafist.
- Whittier College, Whittier CA. Opinn. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- Virginia Tech, Blacksburg, VA. Verkfræði og náttúruvísindi. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
Kanada (Canada)
- Dalhousie University, Halifax, Nova Scotia. Opinn. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- Trent University, Peterborough, Ontario. Opinn. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University of British Columbia, Vancouver. Opinn. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University of Guelph, Ontario. Raunvísindi og landbúnaðarvísindi. TOEFL tungumálaprófs er ekki krafist.
- University of Manitoba, Winnipeg. Opinn. Sjúkratryggingagjald. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University of Ottawa, Ontario. Opinn nema í læknis-, kennslu- og viðskiptafræði. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University of Saskatchewan, Saskatoon. Opinn. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University College of Cape Breton, Nova Scotia. Opinn. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- University of Victoria, Victoria. Ekki opinn í verkfræði, lögfræði, viðskiptafræði, menntavísindum og listasögu. TOEFL enskuprófs og GRE prófs krafist ef sótt er um námskeið á framhaldsstigi (master).
- University of Waterloo, Ontario. Opinn í hugvísindum, umhverfisfræði og raunvísindum. TOEFL tungumálaprófs er krafist.
- École de Technologie Supérieure, Montréal. Opinn í verkfræði. Kennt er á frönsku.
Mið- og Suður Ameríka (Latin America)
- Universidad del Salvador, Buenos Aires, Argentínu. Kennsla fer fram á spænsku.
- Universidad de La Habana, Kúbu. Skiptinemi þarf að greiða skólagjöld, ákveðna upphæð á hverja einingu.
- University of Costa Rica, San José, Costa Rica. Kennsla fer fram á spænsku. Ef ójafnvægi eru í skiptunum, þ.e. enginn nemandi frá Costa Rica kemur til HÍ, þarf að greiða skólagjöld.
Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands, 3. hæð Háskólatorgi, sími 525 4311, ask@hi.is, opið: 10-12 og 12:30-16
