Aðalbjörg Lúthersdóttir


Aðalbjörg Lúthersdóttir var ráðin deildarstjóri á skrifstofu félags- og mannvísindadeildar frá 17. september  2009.  Aðalbjörg lauk meistaranámi í mannauðsstjórnun 2009 frá Háskóla Íslands og BS prófi frá Háskólanum í Stokkhólmi 1990 í starfsmanna- og mannauðsstjórnun.

Aðalbjörg hefur fjölbreytta reynslu af stjórnunarstörfum og  var starfsmannastjóri hjá Mjólkursamsölunni (MS) frá 1997-2008, yfirmaður öldrunarmála í Kópavogsbæ 1991-1997 og starfaði sem forstöðumaður tölvumála hjá Rinkeby í Stokkhólmi frá 1990-1991.

Aðalbjörg mun sjá um daglegan rekstur og stjórn skrifstofu félags- og mannvísindadeildar.

Aðsetur Aðalbjargar er í  Gimli sími: 525 4268 og netfang: adl@hi.is

Háskóli Íslands býður Aðalbjörgu velkomna til starfa.